Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir á sviði samgöngumála

Úrskurður í máli nr. SRN18070040

Ár 2019, þann 27. febrúar, er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r

í máli nr. SRN18070040

Kæra X

á ákvörðun

Samgöngustofu

 

I.      Kröfur og kæruheimild

Þann 12. júlí 2018 barst ráðuneytinu kæra X, kt. 000000-0000 (hér eftir nefndur X), á ákvörðun Samgöngustofu (hér eftir nefnd SGS) frá 10. apríl 2018 um að synja umsókn X um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar. Krefst X þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og honum veitt umbeðið leyfi.

Kæruheimild er í 4. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001.

 

II.        Málsatvik og málsmeðferð ráðuneytisins

Af gögnum málsins má sjá að X lagði fram umsókn um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar fyrir úthlutun sem fram fór í apríl 2018. Með ákvörðun SGS þann 10. apríl 2018 var þeirri umsókn synjað.

Ákvörðun SGS var kærð til ráðuneytisins með bréfi X mótteknu þann 12. júlí 2018. Greinargerð X barst ráðuneytinu þann 9. október 2018

Með bréfi ráðuneytisins dags. 24. október 2018 var SGS gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum varðandi kæruna. Bárust þau sjónarmið með bréfi SGS mótteknu 22. nóvember 2018.

Með bréfi ráðuneytisins dags. 22. nóvember 2018 var X kynnt umsögn SGS og gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum vegna málsins. Bárust þær athugasemdir ráðuneytinu með bréfi X mótteknu þann 14. janúar 2019.

 

III.      Málsástæður og rök X

Í kæru tekur X fram að samkvæmt lögum skuli halda gagnagrunn þegar starfsreynsla er skráð. Í framkvæmd hafi sá háttur verið hafður á að þeir sem fá heimild til aksturs sem forfalla- eða álagsbílstjórar skuli fá útgefna passa sem tilgreini þann dagafjölda sem þeir hafi heimildina. Ekkert eftirlit sé með því hvort viðkomandi vinni þá daga sem passinn gefur. Við úthlutun leyfa sé ekki gerð krafa um að viðkomandi staðfesti þann tíma sem er í gagnagrunni með framlögðum skattskýrslum. X kveðst hafa unnið við leigubílakstur í sex ár, frá október 1978 til nóvember 1984 á Bifreiðastöð X. Hafi hann verið annar tveggja forsvarsmanna en þeir misst stöðina vegna Hæstaréttardóms 11. nóvember 1984. Hafi X haft fulla atvinnu af leigubifreiðaakstri þennan tíma. Þá bendir X á að krafa SGS þess efnis að reynslutíma megi staðfesta með skattframtölum gangi lengra en heimild sé fyrir í lögum og reglugerðum. Einnig bendir X á að á þeim tíma sem hann starfaði á Bifreiðastöð X hafi ekki verið til neinn gagnagrunnur og gildi því ákvæði laga og reglugerðar.

Í andmælum sínum áréttar X þau sjónarmið sem fram koma í kæru um starfsreynslu hans. Bendir X á að Bifreiðastöð X hafi haft 45 atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs samkvæmt þágildandi reglugerð þar til stöðin hafi misst atvinnuleyfi sitt í nóvember 1984. Hafi X starfað þar í fullu starfi í sex ár. Telur X að því standist ekki sú fullyrðing SGS að hann hafi aðeins 227 daga í starfsreynslu.

 

IV.      Ákvörðun og umsögn SGS

Í ákvörðun SGS kemur fram að skilyrði til að fá úthlutað atvinnuleyfi séu tilgreind í lögum um leigubifreiðar nr. 134/2001, sbr. reglugerð nr. 397/2003. Hafi SGS farið yfir umsókn X með tilliti til laga og reglna. Hafi X lagt fram tvö skattframtöl fyrir árin 1983 og 1984, ásamt yfirlýsingu fjögurra einstaklinga um að hann hafi starfað á bifreiðastöð X á árunum 1978 til 1984. Í samræmi við verklag SGS hafi tekjur samkvæmt innsendum skattframtölum verið framreiknaðar þannig að niðurstaða fengist um fjölda daga. Sé þessi aðferð notuð þar sem starfsreynsla X hafi verið eldri en gagnagrunnur SGS, sem annars haldi utan um dagafjölda í leigubifreiðaakstri. Niðurstaða framreikningsins sé sú að fjöldi daga nái ekki því lágmarki sem er áskilið, þ.e. aðeins sé um að ræða 227 daga. Við úthlutun atvinnuleyfa í apríl 2018 sé lágmarks dagafjöldi 1091 og sé 25 leyfum úthlutað. Fullnægi X því ekki skilyrðum laganna um starfsreynslu og sé honum því synjað um úthlutun atvinnuleyfis.

Í umsögn SGS kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001 fari SGS með framkvæmd mála er varðar leigubifreiðar. Undir starfssvið stofnunarinnar falli m.a. útgáfa atvinnuleyfa. Í 6. gr. reglugerðar um leigubifreiðar nr. 397/2003, sbr. 8. gr. laga nr. 134/2001, sé fjallað um úthlutunarreglur þær sem gilda þegar gefin eru út atvinnuleyfi til leiguaksturs. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar veiti SGS að öllum skilyrðum uppfylltum atvinnuleyfi á takmörkunarsvæðum á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar. Samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar sé starfsreynsla metin á grundvelli dagafjölda, þ.e. fjölda daga sem umsækjandi hefur starfað við akstur leigubifreiðar sem afleysingabílstjóri. Sá umsækjandi sem hafi flesta daga í starfsreynslu sé fyrstur í röðinni til að hljóta úthlutun atvinnuleyfis. Í apríl 2018 hafi farið fram úthlutun á 25 atvinnuleyfum til leiguaksturs. Þeir sem fengu úthlutað leyfum hafi verið með að lágmarki 1091 dag metinn í starfsreynslu. X hafi verið með 227 daga metna í starfsreynslu þegar úthlutun fór fram. Í dag sé X með 435 daga metna miðað við þá akstursheimild sem hann hafi til 14. desember 2018 að meðtöldum þeim dögum sem enn eru óunnir. Hafi niðurstaða metins dagafjölda X verið fengin með því að framreikna tekjur hans samkvæmt skattframtölum frá árunum 1983 og 1984. Hafi slíkum framreikningi verið beitt þar sem starfsreynsla X frá þeim tíma sé ekki skráð í gagnagrunn SGS sem hafi ekki verið komið á fót á þeim tíma. Hafi niðurstaða útreiknings sýnt að X hafi verið með 227 daga í starfsreynslu þegar úthlutun fór fram. Hafi X þannig ekki náð sama dagafjölda í starfsreynslu og þeir 25 umsækjendur sem fengu úthlutun og hafi umsókn hans því verið synjað.

 

V.        Niðurstaða ráðuneytisins

Um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiða, veitingu þeirra og skilyrði sem þarf að uppfylla er fjallað í lögum um leigubifreiðar nr. 134/2001. Í 5. gr. laganna er fjallað um skilyrði fyrir atvinnuleyfi og þau talin upp í 1. mgr. ákvæðisins. Í 3. mgr. 5. gr. kemur síðan fram að ráðherra geti í reglugerð kveðið nánar á um skilyrði fyrir atvinnuleyfi og akstri forfallabílstjóra. Um veitingu atvinnuleyfa er fjallað í 6. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins er atvinnuleyfi samkvæmt 5. gr. skilyrði þess að viðkomandi sé heimilt að taka að sér eða stunda leigubifreiðaakstur, sbr. þó 9. gr. laganna. Séu atvinnuleyfi gefin út af SGS hvort sem er á takmörkunarsvæðum eða utan þeirra. Um takmörkun á fjölda leigubifreiða er fjallað í 8. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. þess ákvæðis setur ráðherra í reglugerð, að fengnum tillögum SGS, nánari reglur um fjölda leigubifreiða á ákveðnum svæðum að fenginni umsögn sveitarstjórna, héraðsnefnda og félaga leigubifreiðastjóra. Segir þar einnig í 3. mgr. að þar sem takmörkun á fjölda leigubifreiða hafi verið ákveðin skuli umsækjandi fullnægja skilyrðum 5. gr. og sitji hann að jafnaði fyrir við úthlutun leyfa hafi hann stundað leigubifreiðaakstur í a.m.k. eitt ár. Samkvæmt lokamálslið 3. mgr. 8. gr. skal takmörkun þessi framkvæmd með útgáfu atvinnuleyfa samkvæmt lögunum.

Á grundvelli laga um leigubifreiðar hefur verið sett reglugerð um leigubifreiðar nr. 397/2003. Í 4. gr. reglugerðarinnar er fjallað um takmörkunarsvæði. Kemur þar m.a. fram að hámarksfjöldi atvinnuleyfa á takmörkunarsvæði I sé 580 atvinnuleyfi. Þá kemur fram í ákvæðinu að takmörkun sé framkvæmd með útgáfu atvinnuleyfa svo sem hámarkstala segir til um. Um úthlutunarreglur er fjallað í 6. gr. reglugerðarinnar. Segir þar m.a. í 1. mgr. að SGS veiti að uppfylltum öllum skilyrðum atvinnuleyfi á takmörkunarsvæðum á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar.

Líkt og fram hefur komið sótti X um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar á takmörkunarsvæði I en hámarksfjöldi atvinnuleyfa á því svæði er 580. Þegar umsókn X var til meðferðar hjá SGS voru til úthlutunar 25 laus atvinnuleyfi. Var það niðurstaða SGS að reynsla X hafi ekki verið nægjanleg til úthlutunar þar sem hann hafi ekki verið einn þeirra umsækjenda sem voru með mestu starfsreynsluna. Hafi X á þeim tíma sem úthlutun fór fram verið með 227 daga metna í starfsreynslu en þeir sem fengu úthlutað leyfum hafi verið með að lágmarki 1091 dag metinn í starfsreynslu. Hafi eldri reynsla X samkvæmt framlögðum skattskýrslum verið framreiknuð þar sem gagnagrunni SGS hafi ekki verið komið á fót á þeim tíma sem hennar var aflað.

Það er mat ráðuneytisins að þau sjónarmið sem ákvörðun SGS byggist á séu í samræmi við þau ákvæði laga um leigubifreiðar og reglugerðar um leigubifreiðar sem rakin hafa verið og gilda um veitingu og úthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða á takmörkunarsvæðum. Telur ráðuneytið ekki tilefni til að gera athugasemd við þá aðferð sem SGS viðhefur varðandi mat á reynslu fyrir það tímabil sem gagnagrunnur stofnunarinnar nær ekki til. Af gögnum málsins verði þannig ráðið að X hafi ekki verið einn þeirra 25 umsækjenda sem voru með mestu starfsreynsluna. Hafi niðurstaða SGS því byggt á málefnalegum sjónarmiðum.

Með þessum athugasemdum er það mat ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Úrskurðarorð:

Staðfest er ákvörðun Samgöngustofu frá 10. apríl 2018 um að synja umsókn X um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum